Landsmót kvæðamanna á Hvammstanga 21. – 23 apríl
Stemma – Landssamtök kvæðamanna halda landsmót á Hvammstanga 21. – 23. apríl næstkomandi. Kvæðamannafélögin Iðunn og Vatnsnesingur halda utan um mótið að þessu sinni. Aðildarfélög Stemmu eru Kvæðamannfélögin Iðunn í Reykjavík, Vatnsnesingur í Vestur-Húnavatnssýslu, Gefjun á Akureyri, Ríma í Fjallabyggð, Árgali í Árborg, Snorri í Reykholti, Gná í Skagafirði og Félag ljóðaunnenda á Austurlandi.
Í tilkynningu frá Stemmu má sjá að boðið verður upp á metnaðarfulla dagskrá frá föstudegi til sunnudags og stendur skráning til 14. apríl á netfangið bara.grimsdottir@gmail.com.
Dagskrá Landsmótsins:
Föstudaginn 21. apríl
kl. 20:00 Kvæðatónleikar í Félagsheimilinu Hvammstanga
Úrvals kvæðafólk kemur fram. Verð 1.000 kr fyrir alla, í reiðufé (enginn posi).
Laugardaginn 22. apríl
Fyrirlestur og námskeið í Nestúni 2-4
Kl. 10:00 Agnar Levy, flytur erindi um skáldin/hagyrðingana úr Vestur-Húnavatnssýslu.
Kl. 10:30 – 12:30 Kveðskaparnámskeið – Stemmur systkinanna frá Bergsstöðum og Jóns Lárussonar frá Hlíð. – Kvæðamenn frá Vatnsnesi. Leiðbeinandi Bára Grímsdóttir.
Kl. 12:30 Hádegisverður í Sjávarborg. Verð: 2.850 kr. Sjávarréttasúpa með hörpuskel, þorski og risarækju. Borið fram með heimabökuðu brauði og smjöri kaffi & te er innifalið.
Kl. 13:30 – 15:30 "Þjóðlög sungin í einföldum útsetningum". Leiðbeinandi Linus Orri Gunnarsson Cederborg.
Kl. 15:30 heimsókn að Stöpum á Vatnsnesi til Kjartans Sveinssonar og Maríu Huldar Markan. Þar verður boðið upp á kaffi og með því og kveðið úr rímum eftir Guðmund Bergþórsson. Einnig stansað við minnisvarðann um Guðmund Bergþórsson.
Kl. 19:30 Hátíðarkvöldverður og kvöldvaka í Félagsheimilinu. Verð: 5.000 kr. Þorvaldur Björnsson matreiðslumaður sér um veislu með lambahlaðborði og eftirrétti.
Skemmtidagskrá með kveðskap og fleiru. Ýmsir félagar Stemmu koma fram. Atli Freyr Hjaltason leiðir söngdansa.
Sunnudaginn 23. apríl
kl. 10:00 - Aðalfundur Stemmu í Nestúni 2-4
Kl. 12:00 Hádegisverður í Sjávarborg. Verð: 3.950 kr. Þorskur dagsins, kaffi & te er innifalið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.