Janúarveðrið svipað og í desember en minna frost

Daginn tekinn að lengja og sólin klifrar örlítið hærra í suðrinu og nálgast topp Mælifellshnjúks í Skagafirði. Mynd: PF.
Daginn tekinn að lengja og sólin klifrar örlítið hærra í suðrinu og nálgast topp Mælifellshnjúks í Skagafirði. Mynd: PF.

Fyrsti fundur Veðurklúbbs Dalbæjar fór fram í síðustu viku en þar voru mættir Haukur Haraldsson, Kristján Loftur Jónsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Jón Garðarsson og Magnús Gunnlaugsson. Í skeyti þeirra spámanna er landsmönnum óskað gleðilegs árs þökk fyrir öll þau liðnu.

Strax var hafist handa við að velta fyrir sér hvernig janúarveðrið gæti litið út og voru spámenn nokkuð sammála hvernig það gæti orðið. Niðurstaðan varð sú að veðrið gæti orðið svipað hér norðanlands og í desember en þó með minna frosti. Telja þeir að meiri norðvestan áttir gætu orðið en samkvæmt skeyti til fjölmiðla hafa spámenn ekki miklar áhyggjur þar sem þær gera sjaldnast mikinn usla á stór Dalvíkursvæðinu. Að þessu sinni voru það rytjulegir sauðir í draumum spámanna, sem gerðu ekki ráð fyrir mikilli ofankomu né miklum frostum í janúar.

„Því næst fórum við að velta fyrir okkur sérstökum þekktum veðrabrigðum en komumst að því að þau eru alltof fá skráð frá bændum og búaliði. Úr þessu langar okkur gjarnan að fá að bæta með því að leita hér með eftir því að komast í samskipti við bændur um allt land sem hafa fylgst með og tekið eftir einhverri reglu eða allavega viðmiði í veðri í sínu nágrenni sem hefur vísað til einhvers konar ákveðnu veðri í framhaldinu.

Því biðjum því alla sem þetta lesa að þefa fyrir okkur uppi hvern þann sem gæti verið líklegur til þessa og biðja viðkomandi að vera í sambandi við okkur á andlitsbókinni okkar eða reyna að fá upplýsingar frá viðkomandi sem við getum svo bætt við tilvonandi veðrabrigða samantekt okkar,“ segir í tilkynningu Veðurklúbbsins og tilgreina merkilegt veðrabrigði sem nefnist Hjaltagat og er lýst með eftirfarandi hætti:

„Örnefni eru oftast nær af jarðneskum toga enda varla hægt að ímynda sér margt sem rótbindur manninn fastar við landið sitt en nöfnin í umhverfinu. Eitt er þó það örnefni á Íslandi sem er himneskt og enginn hefur nokkru sinni fest hönd á. Það er Hjaltagat í Köldukinn. Þessu örnefni er svo lýst í örnefnaskrá Gvendarstaða eftir Alfreð Ásmundsson en Helgi Jónsson var heimildarmaður hans:

„Þá eru talin þau örnefni á Gvendarstöðum sem þekkt eru á jörðu niðri. En á himni uppi, séð frá Gvendarstöðum og fleiri bæjum, er eitt örnefni, Hjaltagat, kennt við mann, er Hjalti hét og fyrstur veitti því athygli. Í þrálátri norðaustanátt og óþurrkatíð, þegar himinninn hefir lengi verið þoku kafinn, svo að hvergi hefir séð til lofts, bregður stundum fyrir, einkum seinni part dags, eða að kvöldi, heiðríkjurönd yfir Hrafnsstaðaöxl. Oftast er þessi rönd bogamynduð. Þetta er Hjaltagat og boðar þurrk að morgni, sem stendur í þrjá daga. Þess þarf vel að gæta að hvorki á undan eða jafnhliða Hjaltagati sjáist nokkurs staðar í heiðan himin. Komi það fyrir er veðurspáin marklaus.““

Ekki er til mynd af Hjaltagati svo vitað sé.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir