Fjölgaði um 32 á Norðurlandi vestra

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.041 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. júní 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 294 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 136 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 945 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 241 íbúa. Á Norðurlandi vestra fjölgaði um 32 á þessu tímabili.

Á heimasíðu Þjóðskrár segir að þegar horft sé til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hafi íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 7,1% en íbúum þar fjölgaði um 8 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 6,9% en þar fjölgaði íbúum um 4 einstaklinga frá 1. desember 2022. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 8 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 56 sveitarfélögum.

Á Norðurlandi vestra fjölgaði um 32 á þessu hálfa ári, mest í Skagafirði þar sem 23 bættust við og búa því 4341 í sveitarfélaginu, í Húnabyggð fjölgaði um 15 og íbúatalan 1312 manns. Í Skagabyggð fjölgaði um þrjá hvar 92 eiga lögheimili en íbúafjöldinn á Skagaströnd stóð í stað 483. Í Húnaþingi vestra fækkaði hins vegar um 9 en þar eru skráðir 1250 íbúar1. júní 2023. Á Norðurlandi vestra búa nú 7478 manns.

Fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3,7% sem er fjölgun um 1.143 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 5.800 frá 1. desember 2022 til. 1. júní 2023 sem er um 1,5%.

HÉR er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir