BioPol á Skagaströnd fær 64,8 milljóna styrk úr Rannsóknasjóði Rannís
Á heimasíðu Skagastrandar er sagt frá því að dr. Bettina Scholz starfsmaður BioPol á Skagaströnd hafi, ásamt samstarfsaðilum, hlotið 64,8 milljóna króna rannsóknastyrk frá Rannsóknasjóði Rannís. Rannsóknaverkefnið er til þriggja ára og dreifist því styrkupphæðin á árin 2023-2025.
„Dr. Scholz mun leiða hóp samstarfsaðila sem munu koma að mismunandi þáttum rannsóknaverkefnisins. Innlendir samstarfsaðilar eru: Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, Hafrannsóknastofnun og Tæknisetur. Erlendir samstarfsaðilar verkefnisins starfa við háskóla og rannsóknastofnanir m.a í Þýskalandi, Austuríki, Portúgal og Noregi,“ segir á Skagstrond.is en verkefnið ber heitið: Per og pólýflúoroalkýlefni hitta fyrir kísilþörunga kaldtempraða beltisins og tengdar samlífisverur: Uppsöfnunarleiðir og áhrif á hreysti og auðkenningu.
Í færslu Skagastrandar kemur fram að per og pólýflúoroalkýlefni (PFAS) séu meðal flókinna blanda mengunarefna sem fundist hafa í yfirborðs- og grunnvatni um allan heim og jafnframt í vefjum fiska, fugla og sjávarspendýrum. „Sýnt hefur verið framá að ákveðinn hópur þessara efna veldur truflun í lykilstarfsemi frumna og geta valdið neikvæðum líffræðilegum áhrifum í dýrum og mönnum. Í verkefninu verða lifandi kísilþörungar úr stofnasafni BioPol notaðir til þess að reyna að varpa ljósi á áhrif þessara efna á líf í sjó og hugsanlegar vistfræðilegar hættur sem því tengjast.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.