Beint frá býli dagurinn - 15 ára afmælishátíð

Í tilefni af 15 ára afmæli Beint frá býli félagsins, verður blásið til afmælishátíðar um land allt 20. ágúst.

Gestgjafar víðsvegar um landið bjóða til sín í tilefni dagsins og hér á Norðurlandi er það Sigrún Helga Indriðadóttir, bóndi og handverkskona á Stórhóli í Lýtingsstaðahrepp, sem býður okkur í heimsókn. 

,,Metþátttaka er í okkar landshluta af bændum og handverksfólki sem eru öll að gera eftirtektarverða hluti í vöruþórun beint frá býli," segir á vef SSNV.

Nánari dagskrá og upplýsingar koma þegar nær dregur, en um að gera að taka daginn frá og við sjáumst í Skagafirði hjá Sigrúnu Helgu.

Allar nánari upplýsingar má finna hér á vef Beint frá býli.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir