Auglýst eftir þátttakendum í verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður
Hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður. Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu.
Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, RML, auglýsir eftir þátttakendum í verkefnið og óskað er eftir tíu búum í sauðfjárrækt og/eða nautgriparækt og fimm grænmetisframleiðendum sem stunda útiræktun.
„Þátttakendur þurfa að hafa áhuga fyrir að setja sér skriflega aðgerðaáætlun fyrir búreksturinn, hrinda markmiðum í framkvæmd og vera virkir þátttakendur í vegferð landbúnaðarins að loftslagsvænum lausnum. Þátttakendur fá heildstæða ráðgjöf, fræðslu og aðhald frá RML, Landgræðslunni og Skógræktinni og auk þess þátttökustyrk, styrk til efnagreininga og þegar líður á verkefnið aðgerða- og árangurstengdar greiðslur,“ segir á vef RML.
Öll þátttökubú þurfa að uppfylla lögbundnar skýrsluhaldsskröfur og áskilur verkefnastjórn sér rétt til að velja þátttakendur, verði umsækjendur fleiri en fimmtán.
Hér er hægt að sækja um þátttöku.
Umsóknarfrestur er til 20. Ágúst nk. og hefst verkefnið í september/október á þessu ári. Nánari upplýsingar veittar í síma 516-5000 eða á netfangið berglind@rml.is.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.