Aldrei áður hafa jafnmargir brautskráðst í einu frá HÍ

Alls munu 2.832 kandídatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands á morgun, laugardaginn 24. júní, og hefur skólinn aldrei áður brautskráð jafnmarga í einu. Brautskráningarathafnir verða tvær og fara fram í Laugardalshöll og bein útsending verður frá báðum athöfnum fyrir áhugasama.

Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, taka kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði og Hugvísindasviði við prófskírteinum sínum. Samtals brautskrást 606 frá Félagsvísindasviði, 570 frá Heilbrigðisvísindasviði og 167 frá Hugvísindasviði.

Bein útsending frá fyrri brautskráningarathöfn HÉR

Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Þar brautskrást 543 frá Menntavísindasviði og 275 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði.

Bein útsending frá seinni brautskráningarathöfn HÉR

Til viðbótar brautskrást 677 kandídatar af diplómanámsleiðum á grunn- og framhaldsstigi og munu því alls 2.832 kandídatar útskrifast frá Háskóla Íslands á laugardag með 2.840 prófgráður. Til samanburðar voru þeir 2.594 í fyrra sem var einnig met.

Líkt og áður mun Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytja ávarp við athafnirnar og þá munu Rakel Anna Boulter, sem útskrifast með BA-gráðu í almennri bókmenntafræði, og Alec Elías Sigurðarson, sem brautskráist með MS-próf í efnafræði, ávarpa gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur. Þá mun tónlistarkonan Árný Margrét skemmta gestum.

Háskóli Íslands brautskráði 505 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3.337 útskrifast frá skólanum það sem af er ári, sem einnig er metfjöldi.

Kandídatar hafa fengið sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna en starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir