Vígslubiskup á Hólum
Hólar í Hjaltadal er okkur Norðlendingum helgur staður að fornu og nýju. Kirkju og skólasagan, náttúran og veðursældin hafa markað umgjörð sem lætur þá ekki ósnortna sem annaðhvort hafa búið þar eða kynnt sér til hlítar hve djúpt rætur menningar og þekkingar liggja á Hólum. Og enn er sáð til þeirrar uppskeru.
Innan fárra daga verður gengið til kosninga um nýjan vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Kosið verður á milli þeirra tveggja presta sem flestar tilnefningar fengu en það eru þeir sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ og sr. Þorgrímur Daníelsson á Grenjaðarstað.
Sr. Gísli Gunnarsson og Þuríður Þorbergsdóttir
Ég hef þekkt og unnið með séra Gísli mjög lengi. Hefur hann allt það til að bera sem vígslubiskup þarf að búa yfir. Hann er vel menntaður, góður kennimaður og snjall predikari og gjörkunnugur málefnum kirkjunnar, ytri sem innri. Þekking hans á innviðum Hólastiftis er mjög yfirgripsmikil og hann á auðvelt með að kynnast fólki og setja sig inn í málefni, tillögugóður og sanngjarn og það sem er mikilvægast, hjarta hans slær fyrir Hólastað. En hann er ekki einn á ferð. Eiginkona Gísla, Þuríður Þorbergsdóttir, er einstök sómakona. Gestrisin og glaðvær og hefur sem prestfrú og bóndi í Glaumbæ staðið fyrir stóru og gestkvæmu heimili ásamt því að vera lykilmanneskja í kirkjukórnum og safnaðarstarfi prestakallsins. Af áratuga kynnum mínum af presthjónunum í Glaumbæ þeim Þuríði og Gísla veit ég að þau munu sitja Hóla með virðingu og væntumþykju að leiðarljósi og bera merki staðarins með sæmd.
Gunnar Rögnvaldsson Löngumýri
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.