Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hefst á morgun

Gæsir á flugi. Mynd af ust.is.
Gæsir á flugi. Mynd af ust.is.

Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hefst á morgun, laugardaginn 20. ágúst en þar sem grágæs hefur fækkað á Íslandi hvetur Umhverfisstofnun veiðimenn að gæta hófs við veiðar.

Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að heiðagæsastofninn standi sem fyrr mjög sterkur og taldi hann um hálfa milljón fugla skv. talningum ársins 2019 en íslenski grágæsastofninn náði hins vegar hámarki árið 2011 með 112.000 fuglum. Síðan þá hefur grágæs fækkað og bentu talningar ársins 2020 til þess stofninn væri kominn niður í 60.000 fugla og voru einungis taldar rúmlega 58.000 grágæsir í nóvembertalningum árið 2018 .

„Ekki er alveg ljóst hvað veldur þessari fækkun á grágæs, en til að varpa ljósi á málið hefur Ísland tekið höndum saman við nágranna okkar á Bretlandseyjum með aukinni vöktun og nánara samstarfi. Á síðasta ári náðist samkomulag um merkingarátak sem mun vonandi veita frekari upplýsingar. Í ljósi þessa vil Umhverfisstofnun eindregið hvetja veiðimenn til að gæta hófs við grágæsaveiðar og þannig tryggja viðkomu stofnsins til framtíðar,“ segir í frétt á Ust.is.

Fuglaflensa

Umhverfisstofnun bendir á síðu Matvælastofnunar þar sem finna má upplýsingar um fuglaflensu. Þar má finna leiðbeiningar um hvað skal gera ef villtur fugl finnst dauður eða veikur og grunur er um fuglaflensu. 
Veiðimenn með veiðihunda og aðrir hundaeigendur eru hvattir til að hafa hunda sína í taumi svo þeir komist síður í snertingu við dauða fugla.

Húnaþing vestra hefur sl. ár gefið út reglur um gæsaveiði í eignarlöndum sveitarfélagsins en þær eru hægt að nálgast HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir