Úthlutanir úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
30.07.2021
kl. 11.52
Úthlutað hefur verið úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra en fjórar umsóknir í sjóðinn bárust.
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra sem haldinn var þann 26. júlí sl. var samþykkt að veita þremur aðilum styrk úr sjóðnum.
Eftirfarandi aðilar hljóta styrk:
Ingveldur Ása Konráðsdóttir fyrir Hólakot hundahótel- og þjálfun hlýtur kr. 350.000.-
Handbendi Brúðuleikhús ehf fyrir Prófstein hlýtur kr. 1.000.000.-
Olga Lind Geirsdóttir fyrir Lopalind spunaverksmiðju hlýtur kr. 650.000.-
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.