Þrír leikir á Sauðárkróksvelli á morgun, laugardag

Gervigrasvöllurinn á Króknum. Mynd: Dammi
Gervigrasvöllurinn á Króknum. Mynd: Dammi

Á morgun fara fram þrír leikir á Sauðárkróksvelli og byrjar fyrsti leikurinn kl. 12 þegar A-lið fjórða flokks karla THK, sameiginlegt lið Tindastóls, Hvatar og Kormáks, spilar gegn ÍR. Annar leikurinn byrjar kl 13:20 þegar B-lið fjórða flokks THK spilar einnig gegn ÍR. Þriðji leikurinn verður svo kl. 16:00 en þá mætir meistaraflokkur karla liði KÁ. 

Sjoppan verður á sínum stað í vallarhúsinu en vaktina standa leikmenn og aðstandendur leikmanna sem hyggja á æfingarferð erlendis með 3. flokki karla með vorinu. Nú er bara að nota góða veðrið á morgun og skella sér á völlinn og styðja við drengina.

Áfram Tindastóll

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir