Selasetur Íslands endurnýjar samkomulagið við Hafrannsóknarstofnun

Mynd: Selasetur.
Mynd: Selasetur.

Selasetur Íslands og Hafrannsóknarstofnun, rannsókna- og ráðgjafastofnun hafs og vatna endurnýjuðu samstarfssamning sinn í lok október 2022. Samkomulagið kveður á um eflingu á rannsóknum á selum við Ísland á starfsstöðinni á Hvammstanga. Þá sérstaklega vöktun á stofnstærð útsels og landsels.

Auk þess að sinna gagnasöfnun og rannsóknum sem stuðla að bættri ráðgjöf í samræmi við stjórnunarmarkmiða stjórnvalda. Aðilar eru sammála um að leita leiða til að fjölga starfsmönnum þannig að styrkja megi rannsóknarstarfsemi Selaseturs Íslands og starfsstöð Hafrannsóknarstofnunar á Hvammstanga. Samkomulagið er ótímabundið og lítur Selasetur Íslands björtum augum til framtíðar.“

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir