Riða greindist á Syðri-Urriðaá í í Miðfirði
Við rannsókn á sýnunum á kindum af nokkrum bæjum sem keyptar höfðu verið frá Bergsstöðum, þar sem riða greindist í síðustu, reyndist ein þeirra vera jákvæð, samkvæmt því sem kemur fram á heimasíðu Matvælastofnunar. Hún var frá bænum Syðri-Urriðaá sem er nágrannabær Bergsstaða.
Endanleg staðfesting á greiningunni barst frá Tilraunastöð HÍ að Keldum nú síðdegis. Segir í tilkynningu stofnunarinnar að lagt hefi verið til við Matvælaráðuneytið að fyrirskipaður verði niðurskurður á öllum kindum á bænum sem eru um 720.
„Mikilvægt er að hraða aðgerðum þar sem komið er fast að sauðburði. Því miður er bilun í sorpeyðingarstöðinni Kölku á Suðurnesjum þar sem hræ af riðubæjum eru venjulega brennd. Umhverfisstofnun vinnur nú að því að finna aðra ásættanlega leið til að farga hræjunum. Takist ekki að skera niður á allra næstu dögum verður að fresta aðgerðum fram á sumar. Það kallar á ýmsar kostnaðarsamar og flóknar ráðstafanir til að hindra útbreiðslu smitsins.
Húnaþing vestra hefur boðað upplýsingafund fyrir íbúa á svæðinu þriðjudaginn 18. apríl kl. 20 á Laugarbakka. Fulltrúar Matvælastofnunar verða með erindi á fundinum og sitja fyrir svörum.,“ segir í frétt MAST.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.