Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í Húnaþingi vestra

Mynd: Allessandro Grussu
Mynd: Allessandro Grussu

Óskað hefur verið eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2021. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið; umhverfisstjori@hunathing.is fyrir 16. ágúst nk.

"Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilegra sveitarbæja og atvinnulóða. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga sem skilið ættu viðurkenningu," segir á vef Húnaþings vestra.

/SMH

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir