Mars Baldurs er Ungskáld Akureyrar 2022

Verðlaunahafarnir. Frá vinstri: Selma Dís Hauksdóttir, Mars Baldurs og Guðrún María. MYND AF AKUREYRI.IS
Verðlaunahafarnir. Frá vinstri: Selma Dís Hauksdóttir, Mars Baldurs og Guðrún María. MYND AF AKUREYRI.IS

Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2022 voru kunngjörð á Amtsbókasafninu á Akureyri í síðustu viku. Alls bárust 57 verk í keppnina frá 27 þátttakendum og fyrstu verðlaun hlaut Mars Baldurs fyrir verkið Þágufallssýki. Frá þessu segir m.a. á heimasíðu Grunnskóla og tónlistarskóla Húnaþings vestra en Mars er fyrrum nemandi skólans en nemur nú við VMA á Akureyri.

„Ég reyni að skrifa eitthvað á hverjum degi, aðallega smásögur því mér finnst það form skemmtilegast. Fyrst og fremst eru skriftirnar áhugamálið mitt, þetta byrjaði þannig að ég hafði gaman að því að búa til sögur upp í kollinum á mér en síðan fór ég að skrifa þær niður. Þessi viðurkenning þýðir mikið fyrir mig og er mikil hvatning, nú veit ég að mér er óhætt að halda áfram,“ segir Mars en hán er á þriðja áti í VMA og stefnir á að ljúka stúdentsprófi næsta vor. „Við óskum Mars innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að lesa eitthvað eftir hán sem kemur vonandi út á prenti fyrr en síðar,“ segir svo í lok fréttar á vef GTHV.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem hefur verið við lýði í 19 ár og gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Verkefnið hófst árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á landinu. Liður í því er umrædd ritlistakeppni. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Hann þarf þó að vera á íslensku og áskilið að sé frumsamið hugverk.

Í dómnefnd sátu Finnur Friðriksson, dósent við Háskólann á Akureyri, Sesselía Ólafsdóttir, leikkona og skáld, og Svavar Knútur Kristinsson, tónlistarmaður og textahöfundur.

Heimildir:
https://grunnskoli.hunathing.is
https://www.akureyri.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir