Laus störf við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra
Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra óskar eftir að ráða tvo öfluga einstaklinga í 75-90% störf frá 1. október 2021.
Um er að ræða eina 90% stöðu fyrir kvenkyns starfsmann í afleysingar í 11 mánuði og eina 75% stöðu fyrir karlkyns starfsmann sem er til frambúðar.Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. öryggisgæslu á útisvæði og búningsklefum, þrif á öllum vistaverum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar, uppgjör, þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvar og eftirlit með öryggiskerfum.
Leitað er að einstaklingum sem hafa :
- ríka þjónustulund.
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði.
- góða hæfni í mannlegum samskiptum.
- reynsla er kostur.
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn, ásamt ferilskrá á netfangið : tanja@hunathing.is eða skili umsókn á skrifstofu Húnaþing vestra. Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2021.
Fleiri upplýsingar um störfin má finna inni á heimasíðu Húnaþings vestra.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.