Kaldavatnslaust á Hvammstanga á morgun

Kaldavatnslaust verður á Hvammstanga á morgun, miðvikudaginn 18. ágúst, klukkan 15:30, vegna endurnýjunar á stofnlögn frá vatnstanki. 

Af þeim völdum verður sundlaugin á Hvammstanga lokuð á meðan þær framkvæmdir standa yfir. 

Á vef Húnaþings vestra kemur fram að veitustjóri vonast til að aðgerðir taki fljótt af og beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

/SMH

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir