Höfðingleg gjöf til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra

Á mynd f.v.: Sigurður Þór Ágústsson, Magnús Magnússon, Ólöf Ólafsdóttir og Elísa Ýr Sverrisdóttir. Mynd: hunathing.is.
Á mynd f.v.: Sigurður Þór Ágústsson, Magnús Magnússon, Ólöf Ólafsdóttir og Elísa Ýr Sverrisdóttir. Mynd: hunathing.is.

Sagt er frá því á heimasíðu Húnaþings vestra að Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka hafi komið á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra í gær og fært sjóðnum að gjöf kr. 650.000 en hún hefur unnið að gerð bútasaumsteppa undanfarin ár sem hafa verið afar vinsæl bæði innan og utan héraðs.

„Styrktarfjárhæð Ólafar til Velferðarsjóðsins er líkt og undanfarin fimm ár afrakstur sölu umliðins árs og hefur Ólöf styrkt sjóðinn mjög myndarlega síðastliðin ár eða kr. 3.350.000 á sex árum. Stjórn Velferðarsjóðs er bæði hrærð og glöð yfir þessu göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki,“ segir í frétt Velferðarsjóðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir