Frítt inn á Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna sunnudaginn 28. júlí

Mynd Art Amezcua - tekin af Google
Mynd Art Amezcua - tekin af Google

Í tilefni af hátíðinni Eldur í Húnaþingi sem haldin er þessa dagana verður frítt inn á Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna sunnudaginn 28. júlí. Safnið er opið milli kl. 9-17 og er staðsett á Reykjum í Hrútafirði í Húnaþingi vestra, tæpum kílómeter frá þjóðvegi eitt og leggur safnið áherslu á líf og störf fólks og síðari hluta 19. aldar og byrjun þeirrar 20.

Á safninu eru tvær sýningar í sitthvorum sýningarsalnum. Í fyrsta lagi er sýning um hákarlaveiðar við Húnaflóa en tímabil hákarlaveiðanna var merkilegt tímabil í atvinnusögu héraðanna við Húnaflóa. Þar má berja augum einn af lykilgripum safnsins, hákarlaskipið Ófeig frá Ófeigsfirði á Ströndum. Það var byggt árið 1875. Farið er yfir sögu skipsins, sem er eina skip sinnar tegundar sem varðveist hefur á Íslandi, sýndir eru gripir sem allir tengjast hákarlaveiðum á einhvern hátt, sagt er frá menningunni sem skapaðist í kring um veiðarnar og fleira.

Í stærri sýningarsal safnsins er áhersla lögð á íslenska sveitasamfélagið líkt og það var í kring um aldamótin 1900. Áhersla er lögð á efnismenningu þessa sveitasamfélags. Til sýnis eru þrjú hús úr héraðinu: Tungunesbærinn, stofa úr gamla bænum á Svínavatni og baðstofa frá Syðsta-Hvammi. Hægt er að fara inn í öll húsin, skoða þar munina í rólegheitum og jafnvel setjast niður og slaka á. Í stóra sýningarsalnum eru nokkrar afmarkaðar minni sýningar sem fjalla til dæmis um matargerð fyrr á tímum, sakamál úr Húnavatnssýslum, sögu kvenna og um Grænlandsdvöl Rannveigar H. Líndal á árunum 1921-1923 svo dæmi séu tekin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir