Endurtalning atkvæða í Húnaþingi vestra

Kjörstjórn Húnaþings vestra kom saman í gær í tilefni af erindi N-listans sem farið hefur fram á endurtalningu atkvæða vegna þess hve litlu munaði á atkvæðafjölda á sjöunda manni inn í sveitarstjórn í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru laugardaginn 14. maí sl.

Á  heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að kjörstjórn hafi samþykkti að verða við beiðninni og fer endurtalning fram í dag kl. 20:00 í fundarsal Ráðhússins. Umboðsmenn flokka hafa fengið boð um að vera viðstaddir endurtalningu atkvæða.

Áætlað er að endurtalning taki 2-3 klst. og ætti niðurstaða því að liggja fyrir um kl. 11:00 í kvöld, gangi allt samkvæmt áætlun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir