Byggðastofnun leitar að nýjum forstöðumanni fyrirtækjasviðs
Byggðastofnun leitar að öflugum og traustum einstaklingi til starfa sem forstöðumaður fyrirtækjasviðs. Starfsstöð er í nýjum og glæsilegum höfuðstöðvum stofnunarinnar á Sauðárkróki. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á byggðamálum og metnað til þess að jafna tækifæri landsmanna allra til atvinnu og búsetu. Forstöðumaður fyrirtækjasviðs er jafnframt staðgengill forstjóra og varaformaður lánanefndar.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%. Launakjör eru í samræmi við kjarasamning SSF.
Helstu verkefni
- Yfirumsjón með starfi fyrirtækjasviðs
- Stjórnun, skipulag og útdeiling verkefna á sviðinu og umsjón með greiningu lánsbeiðna
- Umsjón með áhættumati útlána- og hlutabréfasafns og gerð tölfræðiupplýsinga um safnið
- Ábyrgð á útborgun lána og eftirfylgni
- Ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina stofnunarinnar og annarra hagsmunaaðila
- Ábyrgð og eftirfylgni með ákvörðunum stjórnar sem falla undir sviðið
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskipta- eða hagfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg
- Góð fjármálaþekking og reynsla af lána- og/eða bankastarfsemi
- Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Forystu- og leiðtogahæfileikar
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Mikið frumkvæði í starfi auk hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi
- Reynsla af greiningarvinnu og mjög góð greiningarhæfni
- Færni í textagerð og miðlun rannsóknaniðurstaðna
- Drifkraftur og metnaður til þess að efla starf stofnunarinnar, m.a. með fyrirlestrum og kynningum
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknin getur gilt í sex mánuði frá birtingu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Senda skal umsókn til Byggðastofnunar, Sauðármýri 2, 550 Sauðárkróki eða á netfangið postur@byggdastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2022
Frekari upplýsingar um starfið veitir Arnar Már Elíasson forstjóri, arnar@byggdastofnun.is eða í síma 455 5400.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.