Brekkusöngur með Gvendi á Bakka í kvöld

Eldurinn í Húnaþingi logar núna stöðugt með hverjum viðburðinum á fætur öðrum. 

Í kvöld verður brekkusöngur í Kirkjuhvammi þar sem Gvendur á Bakka mun halda uppi fjörinu og hefst hann kl. 20:30.

"En hver er Gvendur á Bakka?" er spurt á heimasíðu Eldsins. Jú það er okkar eigin Guðmundur Grétar á Lækjarbakka.

Að brekkusöngi loknum verða síðan tónleikar með Krumma og Krákunum í félagsheimilinu og hefjast þeir klukkan 22:00 þar sem þeir spila frumsamið ameríkst rokk. 

 

/SMH

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir