Bangsaspítalinn á Akureyri á laugardaginn
„Lýðheilsufélag læknanema tilkynnir með stolti að Bangsaspítalinn sívinsæli verður haldinn í fyrsta skipti á Akureyri laugardaginn 17. september næstkomandi!“ segir á Facebooksíðu Lýðheilsufélags læknanema en þangað er öllum börnum, ásamt foreldrum eða forráðamönnum, boðið að koma með veika eða slasaða bangsa á 5. hæð milli klukkan 10 og 16.
Tilgangurinn með Bangsaspítalanum er tvíþættur, annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn.
Í frétt heilsugæslunnar segir að heimsóknin fari þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa en gott sé að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn sé veikur þ.e. hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót. Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.
„Ekkert vandamál er of stórt eða of lítið fyrir bangsalæknana og hvetjum við alla til að taka daginn frá og kíkja í heimsókn,“ segir í frétt Lýðheilsufélags læknanema. Þó að þessi bangsaskoðun fari fram á heilsugæslunni á Akureyri eru börn utan Eyjafjarðar velkomin með sína sjúklinga.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.