Af hverju Samfélagsbanki?

Sósíalistar tala um að stofna samfélagsbanka, til dæmis úr Landsbankanum. En til hvers? Hvað myndi breytast ef við ættum samfélagsbanka?

Rekstur bankanna

Á 12 mánaða tímabili, þ.e. seinni hluta árs 2020 og fyrri hluta árs 2021 högnuðust bankarnir um 67 milljarða, 67.000.000.000 krónur. Á einu kjörtímabili eru það 268.000.000.000.
Hvernig verður þessi gríðarlegi hagnaður til? Jú, bankarnir reka sig á útlánum. Það þýðir að þeir sem taka lán hjá bönkunum borga hagnaðinn.

Hver borgar brúsann?

Eðli máls samkvæmt þarf fólk sem á ekki peninga að taka lán. Þeir sem eru vel settir fjárhagslega ýmist þurfa ekki lán eða hafa valfrelsi um ódýrari lán í krafti fjárhagsstöðu. Það segir okkur að meginþorri lántakenda og skulda bönkunum eru þeir sem standa verst. Með öðrum orðum þá er hagnaður bankanna búinn til með því að níðast á fátækasta fólkinu.

Ef við gerum ráð fyrir að helmingur þjóðarinnar ýmist þurfi ekki lán eða sé í aðstöðu til að velja ódýrari lán, þá er hagnaður bankanna borinn uppi af helmingi þjóðarinnar, eða um 185.000 manns, þá leggur hver þeirra til ríflega 362.000 krónur árlega. Það er ríflega 30.000 krónur á mann á mánuði. Það sem hjón með 2 börn leggja til í hagnað bankanna er þá 120.000 krónur á mánuði að jafnaði.

Þarf þetta að vera svona?

Stutta svarið er nei. Ef við ákveðum að hætta að féfletta þá sem minnst eiga stofnum við samfélagsbanka sem þarf aðeins að reka sig, ekki að skila hagnaði. Í dæminu hér að undan höfum við ekki talið með rekstrarkostnað bankanna, þannig að fyrir fjögurra manna fjölskyldu getum við lækkað greiðslubyrði um 120.000 krónur á mánuði. Viljum við það ekki?

Hverjir tapa á þessu?

Þá spyr maður sig, ef hægt er að spara svona mikla peninga fyrir fólkið í landinu, hver tapar á þessu? Hinn helmingur þjóðarinnar sem þarf ekki að láta féfletta sig með vaxtakostnaði í dag, verður áfram í sömu stöðu. Þeir tapa engu. Það er orðin skrýtin staða, að helmingur þjóðarinnar öðlist stóraukið ráðstöfunarfé án þess að taka það af hinum helmingnum. Við erum ekki vön svona útreikningum. Eðlilega tapar einhver á þessu, en hver er það?

Stöðugleikinn" sem við búum við í dag er stöðug stefna, ekki stöðug kyrrstaða. Stefnan er sú að einka(vina)væða bankana þannig að þeir lendi í höndunum á fólki sem á mikla peninga í dag, með þeim afleiðingum að fátæka fólkið geti stritað myrkranna á milli til að afhenda ríka fólkinu milljarðana „sína". Stöðugleikinn virkar nefnilega þannig að hluti þjóðarinnar getur stritað stöðugt til að þeir ríku verði stöðugt ríkari.

Niðurstaðan

Niðurstaðan er sú að við höfum val um tvær leiðir:
Viðhalda stöðugleikanum svo hinir fátæku geti stritað stöðugt til að þeir ríku verði stöðugt ríkari.

Eða…

Stofnað samfélagsbanka sem bætir stórlega stöðu hálfrar þjóðarinnar og hinir ríku halda áfram að vera ríkir, bara ekki ógeðslega miklu ríkari en þeir eru í dag.

Setjum X við J og gefum Sósíalistaflokknum tækifæri til að bæta samfélagið okkar!

Bergvin Eyþórsson
Höfundur skipar 5. sæti á lista Sósíalistaflokksins í NV-kjördæmi

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir