Vinningshafar Jólamyndagátu Feykis
Árlega og vinsæla Myndagátan í jólablaði Feykis fór sem betur fer ekki úr blaðinu með Páli Friðrikssyni fráfarandi ritstjóra blaðsins. Hann er maðurinn á bak við gáturnar sem margir bíða árlega eftir að spreyta sig á og það er óhætt að segja að hvorki nýi blaðamaðurinn eða sá sem tók við ritstjórastólnum séu fær um að búa til myndagátu handa ykkur. Það var gaman að fara í gegnum lausnirnar og setja nöfnin í pott en alls bárust á fjórða tug réttra lausna.
Guðni prentarinn okkar hjá Nýprent fékk það verkefni að draga úr pottinum og sigurvegararnir eru sem hér segir;
Guðbjörg Ósk
Ylfa Leifsdóttir
Helga Haraldsdóttir
Haft verður samband við vinningshafa og við hjá Feyki þökkum kærlega fyrir lausnirnar sem bárust. Að lokum er það kannski við hæfi að birta rétta lausn.
„Það urðu margir kátir þegar Tindastóll hampaði Íslandsmeistarabikarnum í körfubolta enda langþráður draumur að rætast“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.