VG og óháð styðja hvorki gjaldskrárhækkanir né fæðisgjöld grunn- og leikskóla
Fræðslunefnd Skagafjarðar lagði fram tillögu að 6% hækkun dvalargjalda leikskóla og 7,7% hækkun fæðisgjalda sem hún segir í samræmi við verðlagsbreytingar út frá þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Átta tíma almennt gjald hækkar úr 41.053 krónum í 43.760 krónur eða um 2.707 krónur á mánuði.
Samhliða ofangreindu var lögð fram tillaga um breytingar á sérgjaldi, í stað þess að sérgjald eigi eingöngu við einstæða foreldra, námsmenn og öryrkja sé hægt að sækja um viðbótargreiðslur á grundvelli tekna. Annars vegar 40% af dvalargjaldi og hins vegar 20% af dvalargjaldi út frá tekjuviðmiði sem Skagafjörður setur. Systkinaafsláttur af dvalargjaldi verður óbreyttur, 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn. Samkvæmt fundargerð samþykkti nefndin tillögu um hækkun og breytingar á sérgjaldi og vísaði til byggðarráðs.
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, fulltrúi VG og óháðra óskaði bókað: „Stefna VG og óháðra er að afnema leikskólagjöld í áföngum. Samkvæmt samantekt ASÍ frá maí sl. var Sveitarfélagið Skagafjörður meðal þeirra sveitarfélaga sem innheimti hæstu leikskólagjöldin á landinu. Því er erfitt fyrir VG og óháða að samþykkja auknar álögur á fjölskyldufólk með árlegum prósentuhækkunum leikskólagjalda og fæðis. Því óska ég bókað að ég sit hjá við afgreiðslu þessa máls.“
Regína Valdimarsdóttir og Hrund Pétursdóttir fulltrúar meirihluta og Agnar Gunnarsson fulltrúi Byggðalista óskuðu bókað:
„Nýverið samþykkti fræðslunefndin tvo aðgerðarpakka í leikskólamálum í Skagafirði en kostnaður við þá nemur samtals um 35 m.kr. og er fræðslunefndin samstíga um þessar aðgerðir. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að fjárhagsáætlunargerð fyrir fræðslumálin og hafa allir fulltrúar nefndarinnar tekið þátt í þeirri vinnu. Þar hafa þeir haft tækifæri til að koma með tillögur til hagræðingar og/eða leiðir til tekjuöflunar fyrir leikskólastigið. Í þeirri vinnu hefur legið fyrir að gjaldskrárhækkanir leikskóla séu óumflýjanlegar til að mæta verðlags- og launahækkunum og þeim kostnaði sem fellur til vegna áðurnefndra nauðsynlegra aðgerða á leikskólastiginu. Gert er ráð fyrir að dvalargjöld leikskóla hækki minna en almennar gjaldskrárhækkanir.
Það er því ljóst að leikskólagjöld geta ekki staðið í stað á milli ára og því nauðsynlegt að mæta hluta kostnaðarhækkana með gjaldskrárhækkun. Farið var í að breyta reglum vegna afsláttar leikskólagjalda þar sem tekið verður tillit til tekna svo unnt sé að mæta barnafjölskyldum sem þurfa á afslættinum að halda og munu þessar reglur taka gildi strax á nýju ári.
Það vekur því furðu að fulltrúar VG og óháðra séu einungis reiðubúnir að samþykkja aðgerðir til að bæta stöðu leikskólanna þegar þær fela í sér aukin útgjöld en ekki þegar kemur að fjármögnun sömu aðgerða. Í þessu samhengi má einnig benda á að Ríkisstjórn Íslands undir forsæti VG gerir ráð fyrir 7,7% hækkun almennra gjalda í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 sem er það sama og sveitarfélagið Skagafjörður miðar við.“
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskaði bókað: „VG og óháð hafa ávallt lagt á það áherslu að Skagafjörður bjóði uppá góða og ódýra þjónustu fyrir börn og barnafólk. Aðgerðarpakka 1 var mætt með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2022 sem allir flokkar samþykktu. Aðgerðarpakki 2 er hugsaður til að koma til móts við starfsmenn leikskóla vegna aukins álags í starfi, ásamt styrk til námsferða og að mati VG og óháðra ekki til þess fallið að réttlæta hækkun á dvalargjöldum til foreldra. VG og óháð styðja því ekki fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir meirihlutans hvort sem er í leikskólum eða fæðisgjöld grunn- og leikskóla fyrir árið 2023.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.