Truflanir í hitaveitu á Sauðárkróki :: Sundlauginni lokað

Vegna kuldans sem nú ríkir virðist sem þrýstingur hafi fallið í hitaveitu í bænum, fyrst í efri byggðum en síðar í öllum bænum. Búið er að loka sundlauginni og biðja stórnotendur að draga úr notkun.

Skagafjarðarveitur biðja viðskiptavini sína að draga úr heitavatnsnotkun eftir því sem kostur er, minnka innspýtingar í plön og rennsli í heita potta. Skagafjarðarveitur biðjast jafnframt velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda, en vonast er til að ástandið lagist þegar líður á daginn.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir