Svo virðist sem aðgerðir í leikskólamálum hafi skilað góðum árangri í Skagafirði
Farið var yfir stöðu mála í skólum Skagafjarðar í gær á fundi fræðslunefndar með tilliti til starfsemi vetrarins, mannaráðningar og ýmissa annarra þátta í skólastarfi en fræðslunefnd samþykkti á fundi sínum í júní sl. ýmsar aðgerðir sem ráðist var í til að auðvelda mönnun í leikskólum.
Fram kemur í fundargerð að svo virðist sem þær aðgerðir hafi skilað góðum árangri og vonast er til að mönnun sé komin í góðan farveg og starfið framundan verði stöðugt og farsælt.
„Enn er þó leitað eftir starfsfólki til starfa svo hægt sé að ljúka innritun barna sem náð hafa 12 mánaða aldri. Ákveðið hefur verið að aðlögun nýrra barna verði þrisvar á ári í Ársölum skólaárið 2022-2023, að hausti, í janúar og síðan í maí. Þetta er þó háð því að það takist að ráða starfsfólk og pláss leyfir. Það fyrirkomulag verður endurmetið fyrir skólaárið 2023-2024.
Nefndin vill koma á framfæri þökkum til foreldra og samfélagsins alls fyrir að leggjast á árar í þessu verkefni. Mikilvægt er að ítreka að samfélagsleg vitund um mikilvægi leikskólans, jákvæð umræða og viðhorf skiptir miklu máli. Þá er einnig mikilvægt að láta koma fram að afar misjafnlega hefur gengið að ráða í allar stöður í grunnskólunum, en nú hillir undir lausnir hvað það varðar.
Nefndin vill einnig koma á framfæri þökkum til starfsfólks alls, bæði í leik- og grunnskóla fyrir þeirra miklu vinnu og margháttaðar lausnir sem fram hafa komið til að laða að starfsfólk til skólanna.
Nefndin er einhuga um að það er fagnaðarefni að samhent átak fræðslunefndar og byggðarráðs fyrr í sumar hefur skilað góðum árangri hvað varðar ráðningar og mönnun stöðugilda í leikskólum Skagafjarðar. Mikilvægt er að viðhalda og styrkja þann árangur sem náðst hefur og leita leiða til að koma einnig til móts við þá starfsmenn, núverandi og tilvonandi, sem ekki eiga börn á leikskólaaldri,“ segir í fundargerð fræðslunefndar Skagafjarðar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.