Starfamessa í FNV þriðjudaginn 22. nóvember
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra blása nú til Starfamessu sem fer fram á morgun, þriðjudaginn 22. nóvember, í húsakynnum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Á messunni er áhersla lögð á iðn-, verk-, tækni- og raungreinar. Ásamt nemum í FNV er gert ráð fyrir að nemendur elstu þriggja stiga allra grunnskólanna á Norðurlandi vestra sæki viðburðinn og mun verkefnið standa straum af flutningi þeirra milli staða, eins og síðast.
Haustið 2017 var í fyrsta sinn haldin starfamessa á Norðurlandi vestra, sem þótti takast afbragðs vel og var ætlunin að slíkur viðburður yrði upp frá því fastur liður á 3ja ára fresti. Því hefði haustið 2020 verið næsta ræs, en sökum heimsfaraldursins varð nokkur bið.
Markmið messunnar er að kynna fyrir tilvonandi og núverandi framhaldsskólanemum hvað þeim stendur til boða þegar kemur að störfum. Á síðustu starfamessu voru um þrjátíu starfsgreinar kynntar og er vonast til að þær verði ekki færri í þetta sinn. Það eru Freyja Rut Emilsdóttir og Steinunn Gunnsteinsdóttir sem hafa veg og vanda af verkefninu og halda utan um framkvæmdina.
Starfamessan er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar landshlutans fyrir 2020-2024.
Heimild: SSNV.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.