Smitaðist aftur af Covid

Nú hækka smittölur umtalsvert á stöðutöflu aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra þar sem æ fleiri veikjast af Covid-19. Veikin leggst mis illa á fólk og í einstaka tilvikum smitast það oftar en einu sinni. Það á alla vega við um Ólu Pétursdóttur, á Sauðárkróki, sem hefur glímt við afleiðingar veikinnar í marga mánuði.

Óla skrifaði á Facebook-síðu sína fyrir helgi að frá 3. janúar hafi hún verið í endurhæfingu á Reykjalundi út af eftirköstum af Covid, og á þeim tíma þurft að fara í sóttkví, smitgát og svo óheppilega vildi til að smitast á ný en hún varð mikið veik í maí í fyrra ásamt öðru heimilisfólki í hópsmiti sem kom upp á Sauðárkróki.

„Ég fór að finna einkennum sem var þurr hósti og hálsinn var líka svo þurr. Ég þambaði mikið vatn, fann að þetta var ekki eins og venjulegt kvef þannig að ég ákvað að fara í PCR próf, fékk ekki útkomuna fyrr en daginn eftir en þá var hringt frá Covid-deildinni. Ég man voða lítið eftir því samtali, ég fraus fyrst en svo kom sjokkið og ég grét úr mér augun, mér fannst þetta svo hræðilegt. Ég smitaði svo alla í fjölskyldunni en þau fóru í sóttkví á heimavistinni en tíndust svo heim eitt af öðru,“ segir Óla um veikindin í fyrra en þá fékk hún sína fyrstu bólusetningu degi eftir að hafa smitast.

„Við smituðust í maí í fyrra, fyrst ég en tveim dögum seinna smituðust Hjalti maðurinn minn og Sæþór Pétur sonur okkar og degi á eftir þeim smitaðist Arnfríður dóttir okkar. Hjalti og Sæþór Pétur sluppu vel því þeir fengu smá kvef. Arnfríður varð frekar mikið veik, fékk svo mikið í öndunarfærin, og er enn að vinna í því og á einmitt að hitta lungnalækni núna á næstu dögum,“ segir Óla sem varð mjög kvefuð, fékk háan hita og í kjölfarið dofnaði bragð- og lyktarskyn.

„Ég missti alveg lyktarskynið og bragðskynið minnkaði mjög mikið sem lýsir sér m.a. þannig að t.d. kaffi varð ódrekkandi, bragðaðist hræðilega, en sem betur fer lagaðist það. En mér finnst ennþá vanta aðeins upp á að þetta sé komið 100%. Svo fékk ég mikinn svima ef ég var t.d. að púsla en allt varð svart ef ég horfði svona mikið niður og allt hring snérist.“

Óla segir að fljótlega eftir veikindin hafi hún farið að finna fyrir mikilli þreytu og orkuleysi og skildi ekki hvaða aumingjagangur væri að hrjá hana. „Ég gat ekki farið í smá gönguferð án þess að þurfa að fara heim og leggja mig. Svo fór ég að finna fyrir kvíða, depurð og þunglyndi, en áttaði mig ekki á þessu ástandi sjálf. Vinkona mín var alltaf að segja mér að fara til læknis en ég hélt alltaf að þetta hlyti að fara að lagast. En þegar kom að því að fara að vinna eftir sumarfrí fékk ég þvílíkt kvíðakast og þá ákvað ég að líklega þyrfti ég að láta kíkja á mig, hitti afleysingarlækni sem lét mig hafa kvíða- og þunglyndislyf sem hjálpuðu helling en ekki nóg samt,“ segir hún.

Hera Birgisdóttir, læknir á Sauðárkróki sótti um fyrir Ólu á Reykjalundi í byrjun október og fékk hún hringingu í byrjun desember og fór í kjölfarið í matsdaga en eftir þá var ákveðið að Óla kæmi inn 3. janúar. „Á matsdögum fer maður í þolpróf, göngupróf, viðtal við lækni og hjúkrunarfræðing, hittir sjúkraþjálfa og iðjuþjálfa einnig hitti ég hjartalækni. Á Reykjalundi er unnið frábært starf og starfsfólkið þar er svo dásamlegt. Þetta er þannig að ég mætti með tóma verkfæratösku og er að safna alls konar tólum og fróðleik til að taka með heim. Ég hef náð að byggja mig alveg ágætlega hér, veran hér hjálpar manni af stað og hjálpar hvernig á að halda áfram þegar heim er komið.

Ég er búin að fara á námskeið, Jafnvægi í daglegu lífi, sem var svo gott og fræðandi, svo hef ég verið í hugrænni atferlismeðferð hjá Rósu, sem er hjúkrunarfræðingur. Við, Post-Covid hópurinn, erum að fá fræðslu sérstaklega fyrir okkur og erum við síðasti hópurinn sem fær það prógramm. Ég er að hitta iðjuþjálfa reglulega og sæki sjúkraþjálfun. Síðan er Post-Covid hjólatímar, þar er verið að vinna með að bæta orkuna. Síðan er vatnsleikfimi, ganga, tækjasalur, badminton, félags- og tómstundahópur og margt margt fleira.“

Óla segist hafa greinst aftur með Covid 8. febrúar sl. en hafi fengið væg einkenni, þurran hósta, höfuðverk og hafa orðið frekar drusluleg. „Þannig að þetta er tvennt ólíkt frá fyrra smiti. Ég á að vera hér til 25. febrúar og ég er pínu smeik um að þolprófið og gönguprófið verði ekki eins gott og það gæti orðið við venjulegar kringumstæður,“ segir Óla og bendir á að hún sé í langhlaupi en muni einn daginn sjá í endalínuna.

Feykir óskar Ólu góðs bata og brýnir fyrir fólki að fara varlega í Covidinu þar sem fólk getur orðir veikara en margir gera sér grein fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir