Shaniya Jones til liðs við Tindastól

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við hina bandarísku Shaniya Jones um að spila með liði Stólastúlkna í Subway deild kvenna á komandi tímabili. Shaniya er 24 ára leikstjórnandi sem kemur til liðsins frá efstu deildinni í Króatíu þar sem hún skilaði yfir 25 stigum að meðaltali í leik.

„Við erum ákaflega ánægð að fá Shaniya til liðs við okkur”, segir Israel Martin þjálfari liðsins. „Hún hefur reynslu úr evrópska boltanum, er að koma til okkar úr efstu deildinni í Króatíu þar sem hún var mjög stigahá. Ég hef átt nokkur samtöl við hana og hún er mjög spennt að koma og tilbúin til að deila reynslu sinni og þekkingu og hjálpa liðinu eins og hún getur.“

„Við bjóðum Shaniya Jones hjartanlega velkomna í Skagafjörðinn og hlökkum til að sjá hana í Síkinu í vetur,“ segir í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild Tindastóls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir