Sameining Akrahrepps og Svf. Skagafjarðar samþykkt í skuggakosningum

Mikill meirihluti kjósenda skuggakosninganna svokölluðu sem fram fóru meðal nemenda í 8.-10. bekkja grunnskólanna í Skagafirði og nemenda í FNV sem ekki höfðu náð 18 ára aldri, var samþykkur sameiningu Akrahrepps og Svf. Skagafjarðar en í aðdraganda kosninga um sameiningartillögu sveitarfélaganna, sem fram fara á morgun, var ákveðið að efna til fyrrgreindra skuggakosninga.

Á heimasíðu samstarfsnefndar, Skagfirðingar.is, kemur fram að kosningarnar hafi farið fram í vikunni, 14.-18. febrúar, en kynningar á tillögunni fóru fram í grunnskólunum og FNV í vikunni þar á undan. Fram kemur að 263 nemendur hafi haft rétt til þess að kjósa um tillöguna en 160 nýtt sér þann rétt og kosningaþátttaka því um 61%.
Niðurstöður kosninganna urðu á þá leið að 113 voru samþykkir tillögunni, eða 82,5% en 24 voru henni andvígir eða 17,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 23.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir