Ragnar Helgason ráðinn í starf sérfræðings á fjölskyldusviði
Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf sérfræðings á fjölskyldusviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Á Skagafjordur.is kemur fram að Ragnar taki við starfinu af Erlu Hrund Þórarinsdóttur sem lét nýlega af störfum, en hún er eiginkona Ragnars.
Fjármálasérfræðingur starfar á fjölskyldusviði og kemur að þjónustu við allar þrjár fagstoðir sviðsins; félagsþjónustu, frístundaþjónustu og fræðsluþjónustu og felur starfið m.a. í sér gerð fjárhagsáætlana og fjárhagsstýringu málaflokka sviðsins í samráði við sviðsstjóra, skv. því sem kemur fram í tilkynningu sveitarfélagsins.
„Ragnar leggur stund á BS nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst samhliða vinnu. Undanfarin ár hefur Ragnar starfað í Arion banka. Nú síðast í starfi sem fjármálaráðgjafi einstaklinga en einnig hefur hann starfað þar sem fyrirtækjaráðgjafi og viðskiptastjóri. Í störfum sínum fyrir Arion banka sinnti Ragnar ýmis konar fjármálagreiningum og þekkir hann því vel til fjárhagsáætlana, rekstraráætlana o.s.frv. Ragnar hefur að auki mikla reynslu í úrvinnslu tölulegra gagna og framsetningu þeirra,“ segir á heimasíðu Skagafjarðar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.