Öryrkja og aldraða að lífskjaraborðinu
Ríkisstjórnin á að tryggja aðkomu heildarsamtaka öryrkja og ellilífeyrisþega þegar kemur að viðræðum ríkisstjórnarinnar og fulltrúa vinnuveitenda og launþega til að ljúka komandi kjarasamningsviðræðum. Þannig tryggja stjórnvöld að almannatryggingarþegar, öryrkjar og ellilífeyrisþegar, fái tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í viðræðunum ásamt því að ríkisstjórnin taki rökstudda afstöðu til þeirra sjónarmiða áður en viðræðunum lýkur. Flokkur fólksins hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórnin tryggi ofangreint. Hér er þörf á réttarbót enda býr alltof margt fólk úr þessum hópum við kjör sem duga ekki fyrir nauðþurftum eða brýnustu framfærslu.
Nú eru fulltrúar vinnuveitenda og launþega í þann mund að hefja viðræður um gerð kjarasamninga. Stærsti einstaki kjarasamningurinn, lífskjarasamningurinn, rennur út 1. nóvember næstkomandi. Fjölmörg fordæmi eru fyrir því að ríkisstjórnin hafi aðkomu að kjaraviðræðum þegar um er að ræða víðfeðma samninga milli fjölda samtaka, bæði launþega og vinnuveitenda. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að gerð lífskjarasamninganna árið 2019 er aðeins eitt dæmi af mörgum. Þá gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu um að ráðist yrði í ýmsar aðgerðir, að upphæð 80 milljarðar kr., á gildistíma lífskjarasamninganna, til að styðja við markmið þeirra um stöðugleika og bætt kjör launafólks.
Kjaragliðnun um tugi prósenta!
Í 69. gr. laga um almannatryggingar segir að bætur almannatrygginga skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þrátt fyrir þau skýru lagafyrirmæli hafa fjárhæðir almannatrygginga ekki fylgt launaþróun undanfarin ár og nú mælist samansöfnuð kjaragliðnun í tugum prósenta!
ASÍ hefur ítrekað bent á það í umsögnum við fjárlög að það sé með öllu óásættanlegt að kjör elli- og örorkulífeyrisþega dragist aftur úr öðrum lágtekjuhópum og mælist til þess að bætur almannatrygginga taki hækkunum til samræmis við lægstu laun á vinnumarkaði.
Án verkfallsréttar – án kjarabóta
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar geta ekki nýtt sér verkfallsrétt til að krefjast kjarabóta. Það hefur tvímælalaust áhrif á þróun kjara þeirra, enda hefur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn virt mannréttindi þeirra svo gott sem að vettugi.
Það er í senn nauðsynlegt og eðlilegt að fulltrúar öryrkja og ellilífeyrisþega eigi sæti við borðið í samningaviðræðum milli ríkis, launþega og vinnuveitenda um kaup og kjör í landinu. Sagan sýnir að í slíkum viðræðum eru iðulega teknar veigamiklar ákvarðanir um ráðstöfun opinberra fjármuna, sem varða hagsmuni allra landsmanna, og því ber ríkinu að tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Aukin verðbólga muni bitna mest á þessum hópum öryrkja og aldaðra.
Þátttaka og virkni í samfélaginu án skerðinga
Mikilvægt er að almannatryggingakerfið tryggi lágmarksframfærslu og að skerðingarreglur læsi ekki fólk í fátæktargildru. Heimila á öryrkjum sem treysta sér til, að reyna fyrir sér á vinnumarkaði í tvö ár án skerðinga og án þess að örorka þeirra sé endurmetin.
Efri árin eiga hvorki að vera fátæktargildra né kvíðaefni. Hækka á frítekjumark ellilífeyris vegna lífeyristekna og leggja niður skerðingar á ellilífeyri vegna atvinnutekna.
Hvetja á einstaklinginn til sjálfsbjargar og aldrei refsa þeim né skerða tekjur þeirra, sem vilja og geta bjargað sér að einhverju leyti sjálfir. Það er bæði siðferðislega rétt og virðir sjálfsbjargarréttinn. Fyrir utan að hvetja til þátttöku og virkni í samfélaginu, sem skilar sér aukinni velmegun.
Afar mikilvægt er að sátt náist í samfélaginu í komandi kjarasamningsviðræðum, ekki aðeins milli fulltrúa vinnumarkaðarins og ríkisins, heldur einnig lífeyrisþega. Slík sátt myndi skapa grundvöll fyrir auknum jöfnuði í samfélaginu, þar sem allir eru fullir þátttakendur.
Eyjólfur Ármannsson
Höfundur er þingmaður fyrir Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.