Lið Hamars/Þórs var sterkara í spennuleik í Þorlákshöfn
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni
02.03.2025
kl. 03.46

Edyta Ewa Falanzcyk hefur átt góða leiki að undanförnu og var stigahæst Stólastúlkna í dag. Hér er hún í leik gegn Aþenu fyrir jól. MYND: SIGURÐUR INGI
Hefðbundinni deildarkeppni í Bónus deild kvenna lauk fyrir viku og nú er hafin einföld umferð neðstu fimm liðanna annars vegar og efstu fimm hins vegar. Lið Tindastóls hafnaði í sjötta sæti og spilaði í gær sinn fyrsta leik í þessari leikjarunu. Þær heimsóttu lið Hamars/Þórs sem var að spila annan leik sinn en þær sunnlensku töpuðu á undraverðan hátt fyrir liði Aþenu. Heimalstúlkur leiddu mestanpart gegn liði Tindastóls sem voru þó ekki langt frá því að næla í sigur en heimastúlkurnar höfðu betur á endanum. Lokatölur 77-72.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.