Kjörstaðir sameiningarkosninga

Í dag fara fram kosningar um sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps annars vegar og Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hins vegar og fara kjörfundir fram víðsvegar í sveitarfélögunum. Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

Í Húnavatnssýslunni fara kjörfundir fram í hvoru sveitarfélagi, á Blönduósi í norðurenda Íþróttamiðstöðvar frá kl. 10 til 20 og í Húnavallaskóla frá kl. 11 til 20.

Kjörfundir verða nokkru fleiri í Skagafirði, einn í Akrahreppi þar sem kosið verður í Héðinsminni frá kl. 12 og í Sveitarfélaginu Skagafirði verður hægt að kjósa á sjö stöðum: Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki frá kl. 9, Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi frá kl. 10, Varmahlíðarskóla frá kl. 10, Félagsheimilinu Ketilási frá kl. 12, Grunnskólanum á Hólum frá kl. 10 og Félagsheimilinu Árgarði í Steinsstaðahverfi frá kl. 12 og Skagaseli frá kl. 12.

Á heimasíðu samstarfsnefndar í Skagafirði segir að kjörfundi megi slíta átta klukkutímum eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði. Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Þetta kallar á að fólk mæti tímanlega til kjörfundar.

Aðsetur kjörstjórnar í Sveitarfélaginu Skagafirði verður í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki en í öðrum sveitarfélögum á viðkomandi kjörstöðum á kjördag. Talning atkvæða fer fram þar sem kjörstjórn hefur aðsetur og hefst eftir að öllum kjörstöðum hefur verið lokað. Verða atkvæða talin og úrslit birt m.a. á  skagfirdingar.is og hunvetningur.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir