Hvað á fuglaskoðunarhúsið á Spákonufellshöfða að heita?

Mynd tekin af Facebook-síðu Sveitarfélagsins Skagastrandar
Mynd tekin af Facebook-síðu Sveitarfélagsins Skagastrandar
Í tilefni þess að fuglaskoðunarhúsið á Spákonufellshöfða er fullbúið efnir Sveitarfélagið Skagaströnd til nafnasamkeppni meðal áhugasamra. Hægt verður að skila inn tillögum til 3. janúar nk. og mun sveitarstjórn taka ákvörðun um nafngiftina sem verður birt við formlega opnun hússins næsta vor og er æskilegt er að nafnið hafi tengingu við hönnun, staðsetningu eða tilgang hússins. 
 
Hér er hægt að senda inn tillögu <tillaga>
 
Um verkefnið
Snemma í haust var hafist handa við að smíða fuglaskoðunarhúsið á Spákonufellshöfða eftir langan aðdraganda. Húsið er hannað af Auði Hreiðarsdóttur arkitekt hjá ESJA Architecture og sáu heimamennirnir Ragnar Már Björnsson og Gísli Reynisson sem reka smíðaverkstæðið Verk lausn um framkvæmdina með liðsinni frá ESJA Architecture og Stoð verkfræðistofu á Sauðárkróki.
 
Fuglaskoðunarhúsið er liður í spennandi uppbyggingu á því dásamlega útivistarsvæði sem Spákonufellshöfði er. Aðkoma og aðgengi á höfðanum hefur verið bætt sem liður í framangreindri uppbyggingu. Búið er að malbika nýtt bílastæði og setja upp vegvísa. Þá verða upplýsingskilti endurgerð ásamt því að búið er að hanna lítinn útsýnispall sem verður reistur næsta vor.
 
Sveitarfélagið stóð straum af kostnaði við verkefnið með stuðningi úr Framkvæmdarsjóði ferðamannastaða en alls hefur Framkvæmdasjóður veitt sveitarfélaginu styrk til uppbyggingar á Spákonufellshöfða sem nemur 26,6 m.kr.
 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir