Hittumst í þinni heimabyggð! Flokkur fólksins á Kaffi Krók í kvöld :: UPPFÆRT! FUNDUR FELLUR NIÐUR VEGNA ÓFÆRÐAR SYÐRA

Allir hvattir til að mæta á Kaffi Krók í kvöld og ræða við þingmenn Flokks fólksins, einn af þeim er Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, en hann hefur látið kvótakerfið til sín taka.
Allir hvattir til að mæta á Kaffi Krók í kvöld og ræða við þingmenn Flokks fólksins, einn af þeim er Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, en hann hefur látið kvótakerfið til sín taka.

Þingflokkur Flokks fólksins verður á ferð og flugi í kjördæmaviku. 14. – 18. febrúar. Efnt verður til fjörugra umræðna um lífskjör og lífsgæði íbúanna; þjónustu í heimabyggð og brýnustu úrlausnarefni á hverjum stað. Einnig verða heilbrigðismál, skólamál, atvinnumál, húsnæðismál og samgöngumál undir smásjánni.

Í tilkynningu frá flokknum kemur fram að jafnframt verði rætt um nauðsyn þess að verja íslensk heimili gegn okri, tryggja öllum lágmarksframfærslu skatta og skerðingarlaust, tryggja öldruðum áhyggjulaust ævikvöld og rétt þjóðarinnar til að njóta auðlinda sinna.

„Við erum full af vilja til góðra verka. Við hlökkum til að hitta alla þá sem vilja hitta okkur og eiga með okkur ánægjulegt og uppbyggjandi samtal um allt það sem þarf að bæta, í þinni heimabyggð,“ segir í tilkynningunni en  HÉR er hægt að nálgast forgangsmál flokksins.

DAGSKRÁ
Mánudagur 14. feb. Sauðárkrókur: Kaffi Krókur kl. 20:00
Þriðjudagur 15. feb. Ólafsfjörður: Kaffi Klara kl. 17.00
Miðvikudagur 16. feb. Dalvík: Gísli, Eiríkur, Helgi 12:30
Miðvikudagur 16. feb. Akureyri: Menningarhúsið Hof kl. 17.00
Fimmtudagur 17. feb. Húsavík: Jæja dingdong kl. 18.00
Föstudagur 18. feb. Egilsstaðir: Salt Café og Bistro kl. 13.30

Þingflokkur Flokks Fólksins Fólkið fyrst – svo allt hitt!

Léttar veitingar í boði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir