Hekla - á Króknum í dag
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
04.07.2024
kl. 09.40
siggag@nyprent.is
Bílaumboðið Hekla verður á Króknum í dag, fimmtudaginn 4. júlí, fyrir utan Bílaverkstæði KS milli kl. 12 og 15. Þar getur fólk komið og reynsluekið nokkrar gerðir af bílum það er því um að gera að kíkja við.
Fleiri fréttir
-
Bjarni Jónsson segir skilið við VG
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 17.10.2024 kl. 15.43 oli@feykir.isÍ yfirlýsingu á Facebook hefur Bjarni Jónsson, oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, lýst því yfir að hann hafi ákveðið að segja sig úr VG og segja skilið við þingflokkinn. „Flestum hefur lengi verið ljóst að flokkurinn hefur sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. Hann hefur brugðist mörgu því fólki sem hefur stutt hann,“ segir Bjarni í yfirlýsingunni.Meira -
Framboð og eftirspurn – sex vikur til kosninga
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 17.10.2024 kl. 14.03 oli@feykir.isNú eru rétt um sex vikur þar til landsmönnum gefst kostur á kjósa til Alþingis á ný í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra taldi að lengra yrði ekki komist í samstarfi Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Forseti Íslands féllst á lausnarbeiðni hans í vikunni og hefur verið ákveðið að Alþingiskosningar verði 30. nóvember. Flokkarnir eru því komnir á fullt í að setja saman lista og gera sig klára í baráttuna um Ísland.Meira -
Kálfshamarsvík númer eitt á forgangslista Húnabyggðar
Húnahornið segir frá því að Kálfshamarsvík sé efst á forgangslista sveitarstjórnar Húnabyggðar vegna styrkumsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið 2025 en umsóknarfrestur rann út í gær. „Þrístapar eru númer tvö á forgangslistanum á eftir Kálfshamarsvík og þar á eftir er göngubrú yfir ós Blöndu, gamli bærinn á Blönduósi og Klifamýri og að lokum náttúruperlan Hrútey,“ segir í fréttinni.Meira -
Haukarnir hans Matés mæta í Síkið í kvöld
Körfuboltinn er kominn á fullt og lið Tindastóls farin að gleðja hjörtu stuðningsmanna. Stelpurnar komnar með tvo nokkuð óvænta sigra og strákarnir með sigur á liði ÍR – langþráður sigur eftir alveg heilar tvær umferðir! Í kvöld mæta Hafnfirðingar í liði Hauka í heimsókn í Síkið og nú er bara að fjölmenna og hvetja strákana til sigurs.Meira -
Teitur Björn sækist eftir efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 17.10.2024 kl. 09.23 oli@feykir.is„Ég býð mig fram til að leiða lista Sjálfstæðiflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að leggja til að þing verði rofið og þar með boðað til alþingiskosninga var hárrétt. Kyrrstaða í málum sem eru jafn mikilvæg framtíð þjóðarinnar og raun ber vitni er óásættanleg,“ segir í tilkynningu frá Teiti Birni Einarssyni, öðrum þingmanni Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.