Grípa verður til aðgerða til að snúa ofan af samþjöppun veiðiheimilda, segir Bjarni Jónsson
„Virðulegi forseti. Aftur og aftur blasir við okkur sá kaldi veruleiki að stórútgerðin heldur áfram að raka til sín meginþorra veiðiheimilda í landinu og grafa undan tilvist smærri fjölskyldufyrirtækja og einyrkja sem halda uppi búsetu á stöðum sem stórútgerðin hefur skilið eftir í sárum,“ sagði Bjarni Jónsson, þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi, í ræðu á Alþingi í gær er hann benti á aðgerðir til að efla smærri sjávarbyggðir.
„Aftur og aftur erum við minnt á mikilvægi þess að virða rétt sjávarbyggðanna og tryggja betur byggðafestu aflaheimilda og koma í veg fyrir að smærri sjávarbyggðir séu rúnar lífsbjörginni með uppsöfnun fárra auðmanna og fyrirtækja á veiðirétti. Ég hef áður sagt það í þessum ræðustól að það verði að grípa til aðgerða til að snúa ofan af samþjöppun veiðiheimilda,“ sagði Bjarni.
Hann bendir á það í færslu á Facebook að festa verði strandveiðar betur í sessi með því að stækka í áföngum félagslega hluta kerfisins úr 5,3% upp í 8,3%, ásamt endurskoðun á úthlutun byggðakvóta og hvernig þær veiðiheimildir nýtist sem best smærri byggðarlögum og færa meira til smærri útgerða og inn í strandveiðikerfið. „Koma þarf í veg fyrir að stór hluti þeirra endi hjá stærstu útgerðarfélögum landsins sem nú þegar halda á stærstum hluta allra veiðiheimilda við Íslandsstrendur.“
Hann segist lengi hafa lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að svæðaskipta veiðum á grásleppu. „Þær rannsóknir og sú þekking sem aflað hefur verið undanfarin ár hafa undirstrikað þýðingu þess að taka upp svæðaskipta veiðistjórn á hrognkelsum til að tryggja sjálfbæra nýtingu stofna, en einnig tryggja hagsmuni viðkomandi byggðarlaga og fjölskyldna sem byggja lífsviðurværi sitt á grásleppuveiðum. Ég fagna skrefum í þá veru.“
Ræðu Bjarna má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.