Góð aðsókn að Sauðfjársetrinu í sumar :: Íslandsmót í hrútadómum haldið 21. ágúst

Átjánda Íslandsmótið í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 21. ágúst næstkomandi og hefst kl. 14:00. Þessari skemmtilegu keppni hefur verið aflýst tvö ár í röð vegna sóttvarnatakmarkana, en verður nú endurvakin.

„Hrútaþuklið er stærsti viðburðurinn í starfi Sauðfjársetursins. Hingað hefur streymt fólk alls staðar að af landinu, bændur og búalið, til að taka þátt eða fylgjast með. Við fengum oft á bilinu 300-500 gesti á hrútaþuklið og vonumst til að fólk fjölmenni líka á mótið í ágúst, eftir þetta leiðinda hlé,“ segir Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins.

Síðast þegar keppt var, árið 2019, sigraði Jón Þór Guðmundsson á Galtarholti í Hvalfjarðarsveit og hefur því haldið titlinum Íslandsmeistari í hrútadómum í þrjú ár. Í öðru sæti þá var Strandamaðurinn Sigmundur Sigurðsson og Bjarni Hermannsson á Leiðólfsstöðum í Dölum í þriðja sæti. Strandamenn eru orðnir verulega óþreyjufullir að vinna titilinn eftir þennan tíma, þeim finnst verra þegar þeir ná ekki að halda honum í heimabyggð.

Sauðfjársetrið í Sævangi

„Starfsemin hefur gengið ágætlega í sumar og aðsókn að Sauðfjársetrinu og veitingasalnum Kaffi Kind aldrei verið meiri en þetta árið. Hlutfall erlendra gesta er að aukast mikið,“ segir Ester. Safnið á 20 ára afmæli á þessu ári og haldið er upp á það með margvíslegum hætti. Í vor var opnuð ný sögusýning um hvítabjarnakomur til Vestfjarða á listasviðinu í Sævangi. Þar er um að ræða samstarfsverkefni viðurkenndra safna á Vestfjörðum og Þjóðfræðistofu. Eins var vegleg þriggja daga Náttúrubarnahátíð í júlí. Hún heppnaðist afbragðs vel og þar var ljómandi góð aðsókn.

„Sauðfjársetrið á Ströndum er viðurkennt safn sem sinnir öllum þáttum safnastarfs og það er líka mikilvæg menningarmiðstöð í héraðinu. Hér hittast heimamenn og eiga saman góðar stundir á margvíslegum viðburðum,“ segir Ester.

Sérsýningum reglulega skipt út

„Aðalsýningin er um sauðfjárbúskap á Ströndum og svo er sérsýningum skipt reglulega út. Nú eru þrjár aðrar sérsýningar í gangi til viðbótar við Hvítabjarnasýninguna nýju. Á einni er fjallað um förufólk og flakkara fyrri tíma og svo er ljósmyndasýning með gömlum Strandamyndum frá Kirkjubóli og Tungusveit í Kaffi Kind. Þriðja sérsýningin er svo utandyra, við göngustíg sem kallaður er Sjávarslóð og liggur frá Sauðfjársetrinu og út í Orrustutangann sem safnahúsið stendur á. Þá sýningu er hægt að skoða allan sólarhringinn og allt árið,“ segir Ester, en söguskilti eru við stíginn og einnig listaverk og skúlptúrar, m.a. er þar verk eftir Guðjón Ketilsson í sumar sem er hluti af listasýningunni Umhverfingu.

Sauðfjársetur á Ströndum er opið daglega yfir sumartímann frá kl. 10 til 18 og samkvæmt samkomulagi yfir veturinn í tengslum við viðburði og heimsóknir hópa.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir