Garðfuglatalning um helgina

Fuglavernd hefur útbúið hjálparblað með myndum sem hægt að nálgast á fuglavernd.is
Fuglavernd hefur útbúið hjálparblað með myndum sem hægt að nálgast á fuglavernd.is

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi og venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Á heimasíðu Fuglaverndar segir að gott sé að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld, segir í tilkynningu Fuglaverndar en það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

Fyrir börn og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun hefur Fuglavernd útbúið hjálparblað með myndum og hægt að nálgast á  fuglavernd.is hvar hægt er að nálgast frekari upplýsingar um verkefnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir