Fyrsta MAKEathonið í verkefninu Grænir Frumkvöðlar Framtíðar í Árskóla á morgun
Á morgun fer fram fyrsta MAKEathon verkefnisins Grænir Frumkvöðlar Framtíðar (GFF) af þremur, í Árskóla á Sauðárkróki. Hin MAKEathonin tvö fara fram fyrir páska í Grunnskóla Bolungarvíkur og Nesskóla í Neskaupstað en MAKEathon verkefnið er nýsköpunarkeppni sem stendur yfir tvo daga. Í þessu fyrsta MAKEathoni tekur 31 nemandi í níunda bekk þátt sem vinna saman í teymum og keppast við að kynna lausn á áskoruninni: Hvernig getum við dregið úr notkun plasts við pökkun fisks og rækju?
„Þeir reyna að búa til einhverskonar frumgerð (e. prototype), m.a. í samstarfi við FabLab Íslands smiðjur á hverjum stað auk þess sem starfsfólk Matís verður á staðnum til aðstoðar, segir í fréttatilkynningu frá MATÍS.
Þar segir að nemendur hafi komið auga á áskorunina þegar þeir fengu heimsóknir sjávarútvegsfyrirtækjunum Dögun og FISK Seafood og fengu fræðslu um starfsemi þeirra, sem var einn þáttur GFF verkefnisins. „Þar að auki fengu þeir innsýn í mögulegar áskoranir hvað varðar áhrif loftslagsbreytinga á hafið og þeirra nærumhverfi en það var hluti af einni vinnustofu verkefnisins, vinnustofu 4. Allt efni GFF verður gert aðgengilegt eftir að verkefninu lýkur.“
Verkefnið Grænir Frumkvöðlar Framtíðar hófst í skólunum í september 2021 og MAKEathonin eru síðasti hluti verkefnisins. Landskeppni á milli skólanna þriggja fer fram í maí og verða úrslit hennar kynnt í Nýsköpunarvikunni, þann 20. maí. Verkefnið er styrkt af Loftslagssjóði.
Sjónvarpsstöðin N4 hefur tekið upp efni í vetur fyrir sjónvarpsþátt um verkefnið og verður þátturinn sýndur á sjónvarpsstöðinni í haust og verkefnið kynnt í heild sinni.
Hér er hægt að fylgjast með gangi verkefnisins:
- Heimasíða verkefnisins: https://graenirfrumkvodlar.com/
- Instagramsíða verkefnisins: https://www.instagram.com/gff_matis/
- #Graenirfrumkvodlar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.