Förum áfram vel með heita vatnið
feykir.is
Skagafjörður
19.12.2022
kl. 11.44
Sparnaðaraðgerðir síðustu daga í hitaveitunni hafa skilað góðum árangri á Sauðárkróki, segir í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum. Áfram er þó ástæða til að fara varlega. Í Varmahlíð er heitavatnsstaðan tæpari og þar má engu muna segir í tilkynningunni og eru íbúar sem fá vatn þaðan beðnir að fara sérstaklega sparlega með heita vatnið.
„Ekkert lát er á þessari kuldatíð og birtum við því sparnaðarráðin okkar aftur:
- Hafið glugga lokaða. Ef lofta þarf út eru gluggar opnaðir í stuttan tíma og síðan lokað aftur og jafnvel skrúfað fyrir ofn á meðan.
- Lækka á ofnum í herbergjum sem ekki eru í notkun. Athugið samt að okkur á ekki að verða kalt við sparnaðinn.
- Lækka stillingar á heitavatnspottum, það er alveg óhætt að lækka niður í 10° c. Það er hvort sem er ekkert gott að fara í pottinn í svona kulda.
- Lækka stillingar á innspýtingum í plön.
Skagafjarðarveitur þakka góðar undirtektir.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.