Fjölgar í tveimur sveitarfélögum af fimm á Norðurlandi vestra
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. nóvember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 6,2% sem er fjölgun um 1.793 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 4,0% á tímabilinu eða um 1.303 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 10.220 frá 1. desember 2021 sem er um 3,1%. Á Norðurlandi vestra fjölgaði um 0,3%.
Það mun vera fjölgun um 21 mann en þetta kemur fram á heimasíðu Þjóðskrár. Þrátt fyrir fjölgun í landshlutanum fjölgar aðeins í tveimur af fimm sveitarfélögum, mest í Húnaþingi vestra eða um 29 manns og um fimm í Skagafirði. Fækkun mældist hins vegar um tvo í sitt hvoru sveitarfélaginu, á Skagaströnd og Skagabyggð og um níu í Húnabyggð. Samkvæmt Þjóðskrá búa 7.445 manns á Norðurlandi vestra.
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 3.461 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. nóvember 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 687 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 330 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.523 íbúa eða um 7,5%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði hins vegar um 57 eða 1,2%.
Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósahrepp
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósahrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tíu mánuði eða um 15,1% en íbúum þar fjölgaði um 37 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða 11,7% en þar fjölgaði íbúum um 25. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 8 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 56 sveitarfélögum.
Fjölgar í öllum landshlutum
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 6,2% sem er fjölgun um 1.793 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 4,0% á tímabilinu eða um 1.303 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 10.220 frá 1. desember 2021 sem er um 3,1%.
Sjá nánar HÉR
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.