Félagsleikar Fljótamanna 2022 um verslunarmannahelgina

Ljóðapönksveitin Gertrude and the flowers verða með tónleika á Félagagsleikum Fljótamanna föstudagskvöld um verslunarmannahelgina.
Mynd af FB
Ljóðapönksveitin Gertrude and the flowers verða með tónleika á Félagagsleikum Fljótamanna föstudagskvöld um verslunarmannahelgina. Mynd af FB

Félagsleikar Fljótamanna verða haldnir öðru sinni um verslunarmannahelgina og byrjar fjörið á föstudagskvöld með tónleikum Gertrude and the flowers.

Tilgangur hátíðarinnar er að rifja upp sögu og félagsstarf í Fljótum og hafa gaman saman, eins og segir í lýsingu viðburðarins á FB.

Efnt verður til ýmisa viðburða svo sem dögurðarfundar, Íslandsmóts í félagsvist,  víðavangshlaups, gönguferðar og síðast en ekki síst tónlistarviðburða. Allur ágóði rennur til góðra málefna í Fljótum.

Viðburðurinn á FB

/IÖF

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir