Ellefu sækjast eftir stöðu framkvæmdastjóra SSNV
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
01.09.2022
kl. 14.59
Fyrir um mánuði síðan rann út umsóknarfrestur í stöðu framkvæmdastjóra SSNV, landshlutasamtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Alls bárust 18 umsóknir um stöðuna en sjö umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka eftir að umsóknarfresti lauk.
Meðfylgjandi er listi yfir umsækjendur og starfsheiti þeirra.
- Guðmundur Tómas Axelsson - Framkvæmdastjóri
- Guðmundur Þór Jónsson - Lögmaður
- Jón Gunnar Borgþórsson - Stjórnenda-/rekstrarráðgjafi
- Jónas Egilsson – Fv. sveitarstjóri
- Katrín Guðjónsdóttir - Framkvæmdastjóri
- Oddur Sigurðarson - Framkvæmda-, fjármála- og þjónustustjóri
- Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir – Fv. sveitarstjóri
- Sigurður Líndal Þórisson - Verkefnastjóri
- Sævar Freyr Sigurðsson - Sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stundarkennari
- Þorvaldur Hjaltason - Rekstrarstjóri
- Örlygur Hnefill Örlygsson – Framkvæmdastjóri
Málaflokkar sem SSNV fæst við varða m.a. byggðaþróun, atvinnumál, menntamál, samgöngumál, menningarmál og kynningu Norðurlands vestra. Öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra eru aðilar að SSNV en þau eru: Húnaþing vestra, Skagabyggð Húnabyggð, Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd. Heimili og varnarþing samtakanna er á skrifstofu SSNV á Hvammstanga.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.