Dagatal Pilsaþyts
Pilsaþytur í Skagafirði býður nú enn eitt árið til sölu borðdagatöl til fjáröflunar fyrir starfssemi sína. Dagatölin prýða myndir af ýmis konar þjóðbúningum og gömlum munum. Fjallkona sameinaðs sveitarfélags í Skagafirði skrýddist á 17. júní hátíðarhöldum í ár, kyrtli sem Pilsaþytskonur hafa saumað til afnota fyrir Skagafjörð við hátíðleg tækifæri.
Við þökkum af alhug öllum þeim sem stutt hafa við bakið á okkur undanfarin ár við þetta mikla samfélagsverkefni. Dagatölin eru ca 10x20 cm á stærð og fara vel á skrifborði auk þess að vera upplögð í jólapakka til starfsmanna. Verð er ennþá einungis 2.000 kr. Ef keypt eru 11-20 stk. þá fer verðið í 1.750 og ef keypt eru yfir 20 stk. fer verðið í 1.500 kr.
Hægt er að panta á astaj@simnet.is eða hringja í síma 861-9809.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.