Byggðastofnun styður nýliðun í landbúnaði

Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, og Steinþór Logi Arnarsson, formaður Samtaka ungra bænda. Mynd tekin af Byggdastofnun.is
Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, og Steinþór Logi Arnarsson, formaður Samtaka ungra bænda. Mynd tekin af Byggdastofnun.is

Byggðastofnun hefur fjármagnað nýliðun á 30 búum síðastliðin þrjú ár með sérstökum lánaflokki til nýliðunar í landbúnaði, en blómleg byggð um land allt byggir að stóru leyti á öflugum landbúnaði.

Árið 2020 gerði Byggðastofnun ábyrgðasamkomulag við Evrópska Fjárfestingasjóðinn (European Investment Fund) sem gerði stofnuninni meðal annars kleift að bjóða upp á lán með meiri sveigjanleika í tryggingum. Lán til nýliðunar í landbúnaði veitir möguleika á allt að 90% veðsetningu auk þess sem heimilt er að greiða eingöngu vexti fyrstu þrjú árin á meðan reksturinn er að komast í gang, nýliðunarstyrkir koma inn og til að greiða niður skammtímafjármögnun þar sem það á við. Með lánaflokknum hefur Byggðastofnun komið að fjármögnun 30 búa eins og áður segir að upphæð um 3 ma.kr.

Nú á dögunum var skrifað undir nýtt samkomulag við Evrópska Fjárfestingasjóðinn um aðild að ábyrgðakerfi InvestEU sem gerir það að verkum að áfram verður boðið upp á lán sem sérstaklega eru ætluð nýliðun í landbúnaði. Þörfin er til staðar og hafa fjölmargir ungir bændur haft samband í kjölfarið og sýnt lánaflokknum áhuga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir