Brottfluttir Króksarar eiga og reka stærstu ferðaskrifstofu landsins sem snýr að erlendum ferðamönnum

Davíð Harðarson (til hægri) ásamt Ásbergi félaga sínum af Smáragrundinni á Króknum. Aðsendar myndir.
Davíð Harðarson (til hægri) ásamt Ásbergi félaga sínum af Smáragrundinni á Króknum. Aðsendar myndir.

Nýlega voru nokkrar íslenskar ferðaskrifstofur sameinaðar undir einum hatti undir nafninu Travel Connect og til varð stærsta ferðaskrifstofa landsins sem snýr að erlendum ferðamönnum. Starfsmenn eru um 200 talsins og spennandi tímar framundan. Fyrirtækið er með sterk ættartengsl við Skagafjörð, því aðaleigendur þess eru þeir Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri, og Davíð Harðarson, fjármálastjóri, sem Feykir ræddi við og forvitnaðist um málið. Til þess að upplýsa lesendur strax um ættartengsl drengjanna þá er Ásberg gamall Króksari, sonur Jóns Ásbergssonar og Maríu Dagsdóttur, sem bjuggu á Sauðárkróki á árum áður, og Davíð er sonur eðal-Króksaranna Margrétar Gunnarsdóttur og Harðar Ingimarssonar.

Þeir Davíð og Ásberg ólust báðir upp á Smáragrundinni á Króknum og kynni þeirra hófust því strax á unga aldri. Davíð segir að þeir Ásberg hafi þekkst ágætlega í uppvextinum, en þó aðallega í gegnum vinskap þeirra Dags, bróður Ásbergs, en þeir Davíð eru jafnaldrar. Dagur er einnig kominn á fleygiferð í ferðaþjónustunni með eitt af áhugaverðari fyrirtækjum á landinu í þjónustu við ljósmyndara sem koma hingað til að skoða land og þjóð, Iceland Personal Tours. Seinna meir lá leið Davíðs og Ásbergs saman í gegnum vinskap eiginkvenna þeirra en þær voru bekkjarsystur í Menntaskólanum í Reykjavík og hafa haldið vinskap síðan.

Vinnufundur.

„Við höfum báðir mikinn áhuga á viðskiptum og var það oft meginumræðuefnið á okkar vinafundum og endaði með því að Ásberg fékk mig til að koma í stjórn Nordic Visitor, enda hugmyndir okkar um lífið og tilveruna býsna áþekkar,“ útskýrir Davíð en snemma árs 2017 fékk Ásberg hann í tveggja vikna vinnu til að skoða afmarkað sérverkefni fyrir Nordic Visitor. „Þarna var ég á milli starfa, en þessar tvær vikur áttu svo sannarlega eftir að vinda upp á sig. Nordic Visitor var á þeim tíma að leysa úr áskorunum varðandi gistingu á Kirkjubæjarklaustri. Gistirými höfðu byggst hægt upp á svæðinu en mikil aukning ferðamannastraums gerði það að verkum að þau önnuðu ekki eftirspurn og kom það í veg fyrir sölu á pakkaferðum okkar til ferðamanna í kringum landið. Brugðum við því á það ráð að byggja einfaldlega sjálfir gistimöguleika upp á svæðinu í gæðum og verði sem ekki var áður til staðar. Var það upphafið að rekstri Magma hótel sem hefur æ síðan frá árinu 2017 fengið góðan vitnisburð að mati viðskiptavina okkar líkt og umsagnir þeirra á Booking.com og TripAdvisor bera merki.“

Fjárfest í Terra Nova

Davíð segir það vera einstaklega skemmtilegt við Magma hótel verkefnið að þeir hafi báðir komið þar að uppbyggingunni að miklu leyti með berum höndum. Fyrst og fremst af áhugasemi við að koma að skemmtilegu verkefni sem var fjarri daglegum skrifstofustörfum en þeir höfðu hvorugur komið að hótelrekstri af nokkru viti áður, segir Davíð, og því blanda sem gat ekki klikkað. „Ásberg er hugmyndasmiðurinn að útliti hótelsins og að hönnun þeirrar upplifunar sem við viljum að gestir okkar njóti. Það reyndist svo þarft að hafa rekstrarmann í verkefninu og tókst okkur í sameiningu að byggja hótelið upp á skömmum tíma.

Þegar uppbyggingunni á Magma hóteli lauk haustið 2017, settumst við félagarnir niður, mátum stöðuna og vorum nokkuð sáttir við samstarfið og hvernig okkur hafði tekist til. Í framhaldinu lögðum við drög að framtíðarsýn fyrir starfsemi Nordic Visitor og í kjölfarið tók ég við starfi fjármálastjóra í fyrirtækinu. Vegferðin byggðist fyrst á því að herða tökin með það sem við höfðum í höndunum í þáverandi rekstri Nordic Visitor sem hafði á þeim tíma spannað rekstrarsögu í heil 15 ár og var þá þegar orðið eitt af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins. Áætlun okkar gekk vel og hélt okkur uppteknum fyrsta árið. Misserin á eftir settum við áhersluna á frekari innri vöxt fyrirtækisins. Samhliða því höfðum við hug á að skoða möguleika á að festa kaup á fyrirtækjum í sambærilegum rekstri. Fyrst með kaupum á ferðaskrifstofunni Terra Nova, eftir langt ferli í febrúar 2020, korter í Covid.“

Davíð nefnir að eftir vel heppnuð kaup á rekstri Terra Nova í miðjum Covid-faraldri hafi þeir séð að það væru frekari tækifæri þarna úti miðað við þá reynslu og þekkingu sem þeir höfðu aflað sér. „Næsta stóra verkefnið sem við lögðumst í var að gera atlögu að kaupum á Iceland Travel sem hefur verið stærsta ferðaskrifstofa landsins í áratugi, stutt af móðurfélaginu Icelandair. Margir fjárfestar sýndu kaupum á Iceland Travel áhuga en að lokum náðum við markmiðum okkar með kaupum á fyrirtækinu. Eftir samrunaferli sem tók rúmlega eitt ár, var þörf á að endurskilgreina samstæðuna og skerpa hlutverk hvers og eins dótturfélags með nýjum áherslum og aðgreiningu. Travel Connect varð þannig til og starfsemi Nordic Visitor færðist yfir í dótturfélag.“

Hluti íbúðanna á Magma Hotel sem staðsett er
skammt frá Kirkjubæjarklaustri.

Ný og spennandi tækifæri

Travel Connect á uppruna sinn í lítilli upplýsingamiðstöð sem stofnuð var af Ásbergi, þá einungis 23 ára ungum manni, uppfullum af nýjum hugmyndum og eldmóði, og segir Davíð hlutverk móðurfélagsins, Travel Connect, í dag vera að styðja við rekstur sex dótturfélaga með þjónustu tengdri fjármálum, innkaupum, tæknilausnum, markaðssetningu og mannauðsmálum.

„Starfsemin er svo rekin í sölueiningum sem starfa undir merkjum Nordic Visitor, Terra Nova, IcelandTours.is, Iceland Travel og Nine Worlds, ásamt Magma hóteli.

Travel Connect er með fimm starfsstöðvar og skrifstofur í þremur löndum, í Reykjavík, Stokkhólmi og Edinborg og er starfsmannafjöldinn kominn í um 200 manns og fer ört fjölgandi. Áfangastaðir samstæðunnar eru fjölmargir. Ísland er langstærst, sem er og verður hjartað í starfseminni, en mestur vöxtur er í erlendu starfseminni sem er sala pakkaferða undir merkjum Nordic Visitor í Skandinavíu, Grænlandi, Svalbarða, Eystrasaltslöndum, Skotlandi og Írlandi.“

Nú eru hartnær 20 ár liðin frá stofnun Nordic Visitor og segir Davíð að með kaupum á Terra Nova og Iceland Travel, sem á rætur að rekja aftur til ársins 1937, sé ljóst að grunnurinn er sterkur til frekari uppbyggingar. „Áherslan númer eitt, tvö og þrjú er að halda áfram að bjóða viðskiptavinum sem koma á vegum Travel Connect framúrskarandi þjónustu og upplifun. Starfsfólkið okkar hefur mikinn metnað og leggur sig fram um að koma okkar góðu vörum í hendur ferðamanna hvaðanæva að úr heiminum. Býsna oft gefa þeir okkur góða endurgjöf um ógleymanlegt ferðalag sem skákar öðrum á þeirra lífsferli. Slíkt vinnuumhverfi er mjög gefandi fyrir starfsmenn og skilar sér vonandi í þjónustu í heimsklassa.“

Eftir vel heppnuð fyrirtækjakaup segir Davíð mikið verk vera framundan í samþættingu en um leið skapist ný tækifæri í vexti Travel Connect.

Útsýnið er ekki amalegt.

„Með sterkt teymi þar sem valinn maður er í hverju rúmi, sterkir bakhjarlar og góðir ráðgjafar er fátt sem stoppar okkur meðan við höfum gaman af því sem við erum að gera. Okkur tókst að fá sterka fjárfesta, Alfa Framtak, með okkur í síðustu vegferð á kaupum á Iceland Travel og styrktum um leið eigið fé sem setur félagið í mjög góða stöðu fyrir framhaldið. Það er ekkert endilega markmiðið að vera stórir en eitt leiðir af öðru og við erum hingað komnir með sterkar sölueiningar með farsæla sögu. Hvað svo tíminn mun leiða í ljós mótast einfaldlega af því hvaða tækifæri við sjáum og höfum áhuga á að taka þátt í. Við höfum borið gæfu til að vinna með skemmtilegu fólki sem hefur haft góð áhrif á umhverfið og þannig tekist að taka réttu skrefin fram á við. Til gamans má geta þess að þriðji Skagfirðingurinn hefur starfað hjá félaginu í rúman áratug við góðan orðstír, Þóra Björk Þórhallsdóttir, en hún var framkvæmdastjóri hjá félaginu í nokkur ár áður en hún flutti til baka í Skagafjörðinn.“

Covid-áskoranir skila sterkari hópi

Það vakna óneitanlega spurningar um hvernig Covid-faraldurinn hafi farið í unga menn með stórar fjárfestingar í ferðamannabransanum og viðurkennir Davíð að faraldurinn hafi reynst vera ein stærsta áskorun þeirra frá upphafi starfsferils en engu að síður í einhverju tilliti blessun. „Okkur tókst vel til strax í upphafi að fá fjármálastofnanir til að standa við bakið á okkur og hafa allar okkar áætlanir í gegnum Covid gengið eftir og gott betur. Nordic Visitor tókst að halda flestum viðskiptavinum sem áætluðu komur sínar sumarið 2020 inni, en margir ferðamenn frestuðu ferðum sínum fram til áranna 2021 og 2022. Enn eru því margir ferðamenn á hliðarlínunni sem eiga eftir að koma og njóta alls þess sem áfangastaðir okkar hafa upp á að bjóða næsta sumar eða um leið og áhrif Covid munu dvína.

Magma Hotel. Móttaka og veitingaaðstaða
er í húsinu fyrir miðri mynd.

Starfsfólkið hafði líka trú á fyrirtækinu og langflestir lykilstarfsmenn stóðu með okkur vaktina í gegnum Covid og nú hyllir undir að biðin hafi verið þess virði. Eftir miklar uppsagnir um haustið 2020 hefur tekist að ráða allflesta sem áður störfuðu hjá okkur til baka og fleiri til. Við tókum þá afstöðu snemma í Covid að veðja á uppbyggingu fremur en algerar uppsagnir og stöðnun þótt í því fælist ákveðin áhætta miðað við aðstæður. Við náðum miklum árangri í umbótum á ferlum og tækniuppbyggingu og síðast en ekki síst stækkuðum við Magma hótel um helming í miðju Covid. Þetta voru krefjandi misseri en eftir á að hyggja er mjög gleðilegt að líta til baka og sjá árangurinn. Ekkert af þessu hefði verið hægt nema með lausnamiðuðu kröftugu starfsfólki sem veigraði sér ekki við að ganga í hvaða störf sem var á þessu Covid tímabili. Eftir stendur teymi sem er meðvitað um hvers það er megnugt við krefjandi aðstæður. Framtíðin er björt hjá Travel Connect, við munum halda ótrauð áfram að leggja okkur fram um að bjóða upp á bestu þjónustu sem völ er á á öllum áfangastöðum okkar. Með því móti vonumst við til að upplifun viðskiptavina okkar verði framúrskarandi og að eftir standi minningar um ógleymanlegar ævintýraferðir á spennandi áfangastaði.“

Áður birst í 8. tbl.  Feykis 2022

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir